Skyrkökur eru alltaf góðar og svo er líka bæði einfalt og fljótlegt að útbúa þær – sem er auðvitað mikill kostur.
Margir þekkja og hafa gert hina klassísku skyrköku með LU-kexi og kirsuberjasósu en þessi hér er sko vel þess virði að prófa.
Uppskriftin að þessari dásemdar skyrköku er frá henni Margréti Theodóru á Kakan mín. En kakan er sko hreint ekkert síðri daginn eftir að hún er gerð.
Það sem þarf
2 pakkar Oreo-kex
100 gr smjör
2 bollar rjómi
2 msk Royal vanillubúðingur
1 stór KEA vanilluskyr
hvítt súkkulaði
dökkt súkkulaði
Aðferð
Byrjið á því að taka einn pakka (4 kexkökur) frá og setjið til hliðar og geymið.
Myljið allt hitt kexið í matvinnsluvél, eða með kökukefli, og setjið í botninn á formi/móti.
Bræðið smjörið og blandið því saman við Oreo kexið.
Myljið afgangskexið (4 kexkökur) gróflega.
Þeytið rjómann með 2 msk af Royal vanillubúðingi.
Blandið síðan skyrinu og kexinu saman við rjómablönduna.
Setjið þá blönduna yfir kexið í forminu.
Rífið að lokum niður hvítt og dökkt súkkulaði og setjið yfir kökuna – og ekkert vera að spara súkkulaðið.
Njótið!