Þessi réttur er sko allt annað en vesenisréttur. Hann er nefnilega bæði einfaldur og fljótlegur en umfram allt er hann bragðgóður. Nautahakk og pizzadeig – það getur varla klikkað.
Kaupa má tilbúið pizzadeig og þá er þetta lítið mál og snýst aðallega um að steikja hakkið og raða þessu síðan saman.
Það er hún Svava á Ljúfmeti og lekkerheit sem deilir hér með okkur þessari frábæru uppskrift að Tacopizzuböku.
Það sem þarf
- pizzadeig (keypt, virkar stórvel)
- 500 g nautahakk
- 1 poki tacokrydd
- 1/2 laukur, hakkaður
- 1-2 tómatar, skornir í sneiðar
- 1 dós sýrður rjómi
- 1-2 tsk paprikukrydd
- vel af chili explosion kryddi (verið óhrædd, það er ekki sterkt!)
- rifinn ostur
Aðferð
Steikið nautahakkið með hökkuðum lauki í smá smjöri. Kryddið með tacokryddinu og hellið smá vatni yfir (1/2-1 dl). Steikið áfram þar til vatnið er horfið.
Kryddið sýrða rjómann með paprikukryddi og chili explosion.
Fletjið pizzadeigið út og setjið í smurt smelluform. Látið deigið ná vel upp hliðarnar.
Setjið nautahakkið yfir pizzadeigið, raðið tómatsneiðum yfir og setjið sýrða rjómann yfir tómatana. Stráið rifnum osti yfir og leggið pizzadeigið yfir ostinn meðfram kanntinum.
Bakið við 200° í 20-25 mínútur eða þar til osturinn hefur bráðnað og fengið fallegan lit.
Berið fram með sýrðum rjóma, salati og nachos.