Þetta eru algeng mistök sem konur gera þegar þær eldast

Kona hugsi feimin óákveðin sátt breytingaskeiðÞað er óhjákvæmilegt og ekki nokkur leið að neita því að með aldrinum breytist bæði líkami okkar sem og húðin.

Ekki er þar með sagt að allir séu alveg sáttir við þessar breytingar og margir reyna allt hvað þeir geta til að halda í það sem áður var.

En með hærri aldri getur verið gott, og jafnvel nauðsynlegt, að hugsa hlutina upp á nýtt og gera breytingar sem henta á hverjum tíma. Eða að minnsta kosti að gera ekki þau mistök að festast í því sama og gera ekki neitt.

Hér eru 10 algeng mistök sem konur gera – og hvernig má forðast þau

1. Ekki einblína á það hvernig þú leist út rúmlega tvítug

Vertu sanngjörn við sjálfa þig og þakklát fyrir að fá að eldast. Það lítur enginn eins út 45 ára gamall og þegar hann var 25 ára. Svo ekki bera þig í dag saman við þá sem þú varst fyrir 20 árum síðan.

Markmiðið er að gera það besta úr því sem maður hefur hverju sinni og að hugsa fyrst og fremst um heilbrigðið. Það eitt og sér að huga að því að halda heilsu er gott markmið.

2. Ekki gera ekki neitt

Ein stærstu mistök sem konur gera er að gera ekki neitt. Það sem hentaði þér í hári, förðun og klæðnaði hér áður fyrr passar kannski ekki alveg fyrir þig núna. Það er ekki þar með sagt að það þurfi að gera meiriháttar breytingar heldur aðeins að endurskoða hlutina.

Getur t.d. verið að hárliturinn sé ekki réttur fyrir litaraftið?

Eða að förðunin henti ekki húð sem er að eldast… og þar fram eftir götunum.

3. Það eru engar hárreglur

Ekki halda að þegar þú verður fimmtug að þú þurfir að klippa hárið stutt eða upp fyrir axlir. Það eru engar reglur!

Allt fer þetta eftir hverri og einni konu og auðvitað ástandi hársins. Svo ef þú vilt hafa sítt hár þá hefur þú sítt hár – svo framarlega sem það klæðir þig. En þá er líka um að gera að finna rétta stílinn sem hentar þér núna. Og ekki láta segja þér að þú þurfir að klippa þig stutt.

sextug fyrirsæta hár grátt

 

 

 

 

 

 

 

 

 

4. Að nota ekki rétta meikið

Litaraft okkar breytist með hærri aldri og húðin verður þynnri. Þess vegna er mjög líklegt að það meik og þeir litir sem þú hefur kannski notað lengi sé ekki alveg það rétta fyrir þig núna.

Ekki er heldur skynsamlegt að nota of mikið af þessum vörum í þeim tilgangi að ætla að fela hrukkur og línur því of mikil notkun lætur þig aðeins líta út fyrir að vera eldri. Reyndu frekar að ná fram náttúrulegu útliti með þynnri förðun.

5. Að gleyma tönnunum

Ekki hugsa bara um að þú sért að fá hrukkur og að hárið sé að þynnast. Hugsaðu vel um tennurnar og ekki sleppa tannlæknaheimsóknum.

Illa hirtar og gular tennur láta okkur líta út fyrir að vera eldri. Auk þess hefur slæm tann- og gómheilsa verið tengd við alvarlega líkamlega sjúkdóma, t.d. hjartavandamál.

kona húð heilsa fegurð

 

 

 

 

 

 

 

6. Að fá ekki nægan svefn

Þeir dagar eru liðnir að þú getir vakað fram eftir og vaknað eins og nýútsprungin rós.

Ef þú færð ekki nægan svefn er það fljótt að sjást á þér núna. Svo ekki svindla á svefninum. Auk þess er svefninn mikilvægur fyrir gott heilsufar og það er algjör óþarfi að taka áhættu með heilsuna þegar við eldumst.

7. Að sleppa því að hreyfa sig

Það getur verið freistandi að hætta eða minnka hreyfinguna þegar þú eldist. En alls ekki gera það.

Þótt þú finnir til í líkamanum þá borgar sig ekki að sleppa hreyfingunni – enda mun hreyfingin að öllu líkindum bæta líðanina.

Hreyfingin skiptir miklu máli þegar við eldumst en þú þarft ekkert að fara hlaupa maraþon, veldu þér bara hreyfingu sem hentar þér og þú hefur gaman af. Þetta skilar sér bæði í betri heilsu sem og því að óvænt kíló setjist ekki á þig.

8. Að vanda sig við fataval

Óhjákvæmilega breytist líkami okkar með hærri aldri og því getur þurft að endurskoða klæðaburðinn. Að öllum líkindum geturðu ekki lengur hoppað í hvaða flík sem er og litið vel út.

Nú þarf að vanda sig meira. Svo farðu vel yfir fataskápinn og skoðaðu líka hvort aðhaldsfatnaður geti hjálpað.

jennifer aniston stíll klassi tíska

 

 

 

 

 

 

 

 

 

9. Að vera í ranga brjóstahaldaranum

Þetta er mun algengara en þig grunar. Og sérstaklega þegar konur eldast.

Það er þetta með að líkaminn breytist, og þá breytast auðvitað brjóstin líka. En magar konur halda samt áfram að kaupa eins brjóstahaldara og í sömu stærðinni í mörg, mörg ár.

Rétti haldarinn getur gjörbreytt því hvernig efri hluti líkamans lítur út. Svo vandaðu valið og fáðu jafnvel aðstoð við að finna rétta brjóstahaldarann.

10. Að gleyma kynþokkanum

Það er ekkert samasemmerki á milli þess að vera ungur og að vera kynþokkafullur. Kynþokkinn hverfur ekkert með hærri aldri svo ekki halda að þú sért ekki lengur kynþokkafull.

Berðu höfuðið hátt og flaggaðu kynþokkanum.

Deildu þessari grein á
  • Nýtt
  • Heilsa og útlit
  • Lífið og lífsstíll
  • Matur og drykkur
  • Menning
  • Myndbönd

Það er gott að kyssa – En veistu hvað kossaflensið getur gert?

Hvað jafnast á við kossaflens og kelerí? Ekkert að mínu mati, þrátt...

Einstaklega einfaldur og fljótlegur eftirréttur

Þegar strákarnir mínir voru litlir bjó ég stundum til eftirrétt handa...

Þessir 9 hlutir eru það besta í lífinu – Og þeir kosta ekki krónu

Öll vitum við að tilvera okkar hér á jörðinni er takmörkuð, en allt...

Þrjár einfaldar hátíðargreiðslur fyrir stutt hár

Þrátt fyrir að hár þitt sé frekar stutt er ekki þar með sagt að...

Þessi safi er alveg hreint frábær við uppþembu og bólgum í líkamanum

Þrátt fyrir að vatnsmelónur séu 92% vatn innihalda þær engu að...

Japönsk vatnsmeðferð sem talin er allra meina bót

Þessi vatnsmeðferð er alveg sáraeinföld, en hún er kennd við Japan...

Frábært trix til að steikja beikon á pönnu – Án alls sóðaskapsins

  Ef þér finnst beikon gott og færð aldrei nóg af því… en...

Bíddu, er hún 65 ára? Og hvert er leyndarmálið?

Leikkonan Dana Delany lítur alveg ótrúlega vel út miðað við aldur....

Þrjár einfaldar hátíðargreiðslur fyrir stutt hár

Þrátt fyrir að hár þitt sé frekar stutt er ekki þar með sagt að...

Japönsk vatnsmeðferð sem talin er allra meina bót

Þessi vatnsmeðferð er alveg sáraeinföld, en hún er kennd við Japan...

Vissir þú að ananas hefur lækningamátt?

Ananas er stútfullur af góðum næringarefnum og þá meinum við...

Þessi greiðsla tekur fimm mínútur – Ótrúlega flott

  Já takk, við erum sko meira en til í þessa flottu greiðslu sem...

Konur hrjóta líka – Þótt þær haldi öðru fram

Konur um og yfir fimmtugt kvarta frekar en karlar á sama aldri yfir...

Afar mikilvægt fyrir allar konur – og þá sérstaklega konur yfir fertugt

Mælt er með því að hver kona skoði sjálf og þreifi brjóst sín í...

Hættulegra að sofa of mikið en of lítið

Það greinilega borgar sig ekki miðað við nýlega rannsókn að snúa...

Höfuðverkur og konur yfir fertugt – Hver er ástæðan fyrir höfuðverknum?

Afar algengt er að konur yfir fertugt þjáist af höfuðverk sem rekja má...

Það er gott að kyssa – En veistu hvað kossaflensið getur gert?

Hvað jafnast á við kossaflens og kelerí? Ekkert að mínu mati, þrátt...

Þessir 9 hlutir eru það besta í lífinu – Og þeir kosta ekki krónu

Öll vitum við að tilvera okkar hér á jörðinni er takmörkuð, en allt...

Bíddu, er hún 65 ára? Og hvert er leyndarmálið?

Leikkonan Dana Delany lítur alveg ótrúlega vel út miðað við aldur....

Eyðir þú oft peningum í óþarfa? – Hér eru ráð við því

Það er ótrúlegt hvað við getum stundum verið dugleg að eyða...

Snilldar ráð til að gera háu hælana þægilegri

Hvaða kona elskar ekki skó og háa hæla? Þrátt fyrir að það geti...

Karlmenn eru svo miklu mýkri en margar konur halda

Alveg eins og karlmenn eiga oft erfitt með að skilja okkur konur þá...

Lætur þú þarfir annarra alltaf ganga fyrir?

Ert þú týpan sem lætur alltaf aðra ganga fyrir en situr svo sjálf á...

Eru fimmtugar konur í dag eins og fertugar hér áður?

Íslenskar konur eiga góða möguleika á því að ná háum aldri og við...

Einstaklega einfaldur og fljótlegur eftirréttur

Þegar strákarnir mínir voru litlir bjó ég stundum til eftirrétt handa...

Þessi safi er alveg hreint frábær við uppþembu og bólgum í líkamanum

Þrátt fyrir að vatnsmelónur séu 92% vatn innihalda þær engu að...

Frábært trix til að steikja beikon á pönnu – Án alls sóðaskapsins

  Ef þér finnst beikon gott og færð aldrei nóg af því… en...

Bakaðar og gómsætar pepperoni pizza kartöflur

Fáir slá hendinni á móti brakandi pepperoni pizzu, eða bakaðri...

Gómsætur bakaður Brie í áramótaveisluna

Bakaðir ostar eru í miklu uppáhaldi hjá mér og geri ég þannig...

Dásamlegt jóla Tiramisu úr smiðju Jamie Oliver

Það er algjörlega ómissandi að fá góðan eftirrétt um jólin. Hvort...

Æðislegir snickersbitar á aðventu

Nú á aðventu er smákökubakstur á fullu á mörgum heimilum. Margir...

Gómsætar jólalegar súkkulaðikökur með Bismark súkkulaði

Þær gerast nú varla mikið jólalegri smákökurnar… hvað þá...

Þetta eru tuttugu rómantískustu bíómyndir allra tíma

Hvað er meira kósý en að kúra uppi í sófa þegar kalt er úti og...

Tíu frábærar bíómyndir sem fá þig til að gleyma lífsins áhyggjum

Þegar veðrið er ekki upp á sitt besta, maður er jafnvel lokaður inni...

Þetta eru eftirminnilegustu kossar allra tíma

Kossar í bíómyndum verða gjarnan eftirminnilegir – og oft eru...

Jólalög og ljúfir tónar á Þorláksmessu í Hörpu – Frítt inn og allir velkomnir

  Margir leggja leið sína í miðbæ Reykjavíkur á Þorláksmessu...

Mahler og Mussorgsky á Óperudögum í Hannesarholti

  Þau Aron Axel Cortes barítónsöngvari og Hrönn Þráinsdóttir...

Skelltu þér á ókeypis tónleika Óperunnar í Hörpu – Notalegt í hádeginu

Íslenska óperan býður upp á í vetur, eins og undanfarna vetur,...

Svona hefurðu aldrei heyrt lagið Jolene áður… frábær A capella flutningur

Dolly Parton er afskaplega hæfileikarík og þá ekki eingöngu sem...

Gætir þú lifað án tónlistar?

Hvernig væri tilveran án tónlistar? Tónlist er stór hluti af menningu...

Langt leidd af Alzheimer en kemur alltaf tilbaka þegar hún syngur

Það er afar sárt fyrir aðstandendur Alzheimers-sjúklinga að horfa upp...

Er eitthvað krúttlegra en þetta? – Gleðipilla dagsins!

Lítil börn og hundar eru auðvitað bara dásemd. Og þetta litla krútt...

Faðir brúðarinnar neitaði að halda ræðu og gerði þetta í staðinn

Faðir brúðarinnar ákvað að halda ekki hefðbundna ræðu í...

Tónlist gerir kraftaverk fyrir Alzheimer-sjúklinga – Sjáðu myndbandið

Þetta fallega spænska myndband sýnir hversu stórkostleg áhrif tónlist...

85 ára afi stelur senunni í brúðkaupi í hlutverki blómastúlku

Þetta myndband bræðir mann alveg. En þessi 85 ára afi stal senunni í...

Þessi litla ódýra jólaauglýsing hefur gjörsamlega brætt netheima

Það á oftar en ekki við að minna er meira og það sannar þessi litla...

Dáleiddu salinn og dómarana með töfrandi hreyfingum – Alveg magnað

Þessi hópur stúlkna frá Líbanon, 31 talsins, eru keppendur í nýjustu...

Stóð uppi sem sigurvegari 89 ára gamall – Aldrei of seint að láta draumana rætast

Við höfum lengi talað fyrir því að maður er aldrei, nei ALDREI, of...