Þessi uppskrift og aðferð er ævaforn og svínvirkar á kvef og flensu. En það er alltaf gott að kunna góð ráð sem hægt er að nýta sér þegar kvefið og flensan banka upp á.
Um leið og þú finnur að það er að helllast yfir þig kvef skaltu útbúa þetta te og drekka. Það tekur ekki nema nokkrar mínútur að útbúa og þú getur unnið á kvefinu strax í byrjun með þessu.
Það sem þú þarft er
Vatn
Engiferrót
Hrátt hunang
Aðferð
Settu vatn í pott og hitaðu að suðu.
Taktu um 5 cm af engiferrót og skafðu hýðið utan af henni.
Skerðu rótina í litlar skífur.
Settu síðan út í vatnið og leyfðu að sjóða í 10 sekúndur.
Slökktu á hitanum, settu lokið á pottinn og láttu engiferrótina liggja í vatninu í 15 mínútur.
Helltu í bolla.
Taktu þá hálfa sítrónu og kreistu út í bollann.
Og bættu svo að lokum einni matskeið af hunangi út í.
Hrærðu vel saman.
Þetta ætti að hjálpa þér að vinna á kvefinu og flensunni.